Reykjatröð 7 - umsókn um byggingarleyfi fyrir gestahúsi
Málsnúmer 2412009
Vakta málsnúmerSkipulagsnefnd - 32. fundur - 15.01.2025
Sótt er um byggingarleyfi fyrir hús að stærð 23 m2 á lóð nr. 7 í Reykjatröð í Fnjóskadal. Fyrirhuguð bygging er með einhalla þaki, vegghæð 3,7 m og stefnu samsíða lóðamörkum. Í gildi er deiliskipulag frá 2020. Þar eru skilmálar um mænisþak, hámarks vegghæð 3 m og mænisstefna skal vera sem næst norður-suður en aðstöðuhús má vera með mænisstefnu þvert á hana.
Erindið var grenndarkynnt frá 11. desember 2024 með athugasemdarfresti til 9. janúar 2025. Engar athugasemdir bárust.
Erindið var grenndarkynnt frá 11. desember 2024 með athugasemdarfresti til 9. janúar 2025. Engar athugasemdir bárust.
Skipulagsnefnd samþykkir að veita undanþágu frá skilmálum gildandi deiliskipulags Reykja samkv. 3. mgr. 43. gr. skipulagslaga nr. 123/2010 þar sem um svo óverulegt frávik er að ræða að hagsmunir nágranna skerðist í engu hvað varðar landnotkun, útsýni, skuggavarp eða innsýn. Nefndin felur byggingafulltrúa að gefa út byggingaleyfi þegar fullnægjandi gögn hafa borist.