Fara í efni

Garður - umsókn um byggingarleyfi fyrir sólstofu

Málsnúmer 2412023

Vakta málsnúmer

Skipulagsnefnd - 32. fundur - 15.01.2025

Sótt er um byggingarleyfi fyrir sólstofu að stærð 39,9 m2 við íbúðarhús í Garði lóð 1 í Mývatnssveit. Í gildandi aðalskipulagi er svæðið landbúnaðarland en ekki er til deiliskipulag fyrir svæðið.
Skipulagsnefnd samþykkir að grenndarkynna áformin nágrönnum, samkvæmt 2. mgr. 44. gr. skipulagslaga nr. 123/2010. Einnig skal óskað eftir umsögn Minjastofnunar Íslands, Náttúruverndarstofnunar og Heilbrigðiseftirlits Norðurlands eystra. Byggingafulltrúa er falið að gefa út byggingaleyfi ef engar athugasemdir berast við grenndarkynningu, að fengnum jákvæðum umsögnum umsagnaraðila og þegar fullnægjandi gögn hafa borist ásamt leyfi Náttúruverndarstofnunar um framkvæmd innan friðlýstra svæða.
Getum við bætt efni þessarar síðu?