Fara í efni

Sinfó í sundi - Samfélagsgleði um allt land í ágúst

Málsnúmer 2503002

Vakta málsnúmer

Íþrótta-, tómstunda- og menningarnefnd Þingeyjarsveit - 24. fundur - 08.04.2025

Sinfóníuhljómsveit Íslands heldur upp á 75 ára afmæli sitt á árinu 2025.
Í tilefni afmælanna vill Sinfóníuhljómsveit Íslands leita eftir samstarfi við sveitarstjórnir um land allt um verkefnið Sinfó í sundi. Hvatt er til þess að sveitarstjórnir á hverjum stað bjóði upp á beina útsendingu í sundlaugum landsins frá tónleikunum Klassíkin okkar sem hefjast kl. 20:00 á RÚV þann 29. ágúst.

Íþrótta-, tómstunda- og menningarnefnd Þingeyjarsveitar leggur til við sveitarstjórn að stutt verði við þennan viðburð. Hann fari fram í sundlauginni á Laugum, frítt yrði í sund og opnunartíminn lengdur. Hugsanlega mætti vera í samstarfi við framhaldsskólann á Laugum m.a. um tækjabúnað.
Getum við bætt efni þessarar síðu?