Þingeyjarskóli auglýsir eftir aðstoð í eldhús. Um er að ræða 75% starf og þarf viðkomandi að geta hafið störf um miðjan janúar 2025.
Helstu verkefni
• Vinnur undir leiðsögn yfirmatráðs.
• Þátttaka í matseld fyrir nemendur og starfsfólk Þingeyjarskóla.
• Sér um að matur sé samkvæmt lýðheilsumarkmiðum, hollur, fjölbreyttur og snyrtilega framborinn.
• Frágangur og þrif í eldhúsi og matsal.
Menntunar- og hæfniskröfur
• Menntun og reynsla sem nýtist í starfi er kostur.
• Skipulagshæfni, snyrtimennska og sjálfstæði í vinnubrögðum.
• Hæfni í mannlegum samskipum og frumkvæði í starfi.
• Stundvísi og áreiðanleiki.
Þingeyjarskóli er samrekinn leik-, grunn- og tónlistarskóli með um 100 nemendur. Lögð er áhersla á samvinnu og sameiginlega ábyrgð starfsmanna á
verkefnum skólans. Áhugasamir einstaklingar, án tilliti til kyns, eru hvattir til að sækja um.
Við framlengjum umsóknarfrestin til og með 10. janúar 2025 og skulu umsóknir berast á netfangið lilja@thingskoli.is
Frekari upplýsingar veitir Lilja Friðriksdóttir, skólastjóri Þingeyjarskóla, í
gegnum tölvupóst lilja@thingskoli.is og í síma 464-3580/847-2372.