Athugasemdir við Þjónustustefnu?

Í júní 2021 samþykkti Alþingi nýtt ákvæði við sveitarstjórnarlög sem fjallar um þjónustustefnu í byggðum og byggðarlögum sveitarfélags. Samkvæmt 130. gr. a sveitarstjórnarlaga, skal sveitarstjórn móta stefnu fyrir komandi ár og næstu þrjú árin eftir það, um það þjónustustig sem sveitarfélagið hyggst halda uppi í byggðum og byggðarlögum fjarri stærstu byggðakjörnum viðkomandi sveitarfélags.

Þingeyjarsveit leitar eftir ábendingum/athugasemdum við þjónustustefnu Þingeyjarsveitar . Hægt er að skila þeim inn til og með 10. desember nk.

Smelltu hér til að skoða þjónustustefnu Þingeyjarsveitar 2025 - 2028

Hægt er að senda inn ábendingu/athugasemd með því að smella hér.