Um er að ræða þriggja herbergja íbúð, um 80 m2 að stærð, við Melgötu 6b við Stórutjarnaskóla.
Markmið Leiguíbúða Þingeyjarsveitar hses. með byggingu almennra íbúða er að bregðast við eftirspurn leiguhúsnæðis í sveitarfélaginu og um leið bæta húnæðisöryggi fjölskyldna og einstaklinga sem eru undir tekju- og eignamörkum skv. 10. gr. laga um almennar íbúðir við upphaf leigu. Um byggingu og útleigu íbúðanna gilda lög um almennar íbúðir nr. 52/2016.
Leigist íbúðin ekki út skv. reglum um almennar íbúðir er heimilt að leigja hana út á almennum markaði. Leigusamningur er þá gerður til eins árs í senn.
Forgangsröðun
Leiguíbúðir Þingeyjarsveitar hses. forgangsraðar umsóknum sem hér segir:
Tekju- og eignamörk
Árstekjur leigjenda almennra íbúða við upphaf leigu skulu ekki nema hærri fjárhæð en 7.969.000 kr. fyrir hvern einstakling en 10.775.000 kr. fyrir hjón og sambúðarfólk. Við þá fjárhæð bætast 1.924.000 kr. fyrir hvert barn eða ungmenni að 20 ára aldri sem býr á heimlinu. Með tekjum er átt við allar tekjur samkv. II. kafla laga um tekjuskatt nr. 90/2003, samkvæmt skattframtali síðasta árs, staðfestu af ríkisskattstjóra, að teknu tilliti til frádráttar skv. 1.,3.,4. og 5. tölul. A-liðar 1. mgr. og 2. mgr. 30 gr. og frádráttar skv. 31. gr. sömu laga.
Samanlögð heildareign leigjenda almennra íbúða að frádregnum heildarskuldum við upphaf leigu, með vísan til 72. -75. gr. laga um tekjuskatt samkvæmt skattframtali síðasta árs staðfestu af ríkisskattstjóra, skal ekki nema hærri fjárhæð en 8.307.000 kr.
Umsóknarferli og úthlutun
Umsóknir um leigu íbúða skulu berast rafrænt á þar til gerðu eyðublaði sem er að finna má á heimasíðu Þingeyjarsveitar undir „Eyðublöð“.
Rafrænt umsóknareyðublað er að finna hér
Með umsókn skal fylgja afrit af skattframtali síðasta árs og afrit af þremur síðustu launaseðlum umsækjanda.
Stjórn Leiguíbúða Þingeyjarsveitar hses. úthlutar íbúðunum eftir að farið hefur verið farið yfir allar umsóknir.
Umsóknarfrestur er til og með 11. september 2023.
Fyrirspurnir má senda á netfangið thingeyjarsveit@thingeyjarsveit.is eða í síma 464 3322