Margrét Hólm Valsdóttir hefur verið ráðin í nýtt starf sviðstjóra fjármála- og stjórnsýslusviðs.
Margrét kemur frá Íslandsbanka en þar hefur hún gegnt starfi útibússtjóra bankans á Húsavík sl. sex ár. Margrét Hólm er með B.Sc. í viðskiptafræði frá Háskólanum á Akureyri, iðnrekstrarfræðingur af markaðssviði frá sama skóla og með diploma í ferðamálafræði frá Háskólanum á Hólum. Hún hefur einnig lokið námi frá Akademias sem viðurkenndur stjórnarmaður.
Margrét hefur fjölbreytta starfsreynslu að baki, var sparisjóðsstjóri Sparisjóðs Suður Þingeyinga á árunum 1999-2005, fjármálastjóri Framhaldsskólans á Laugum, skrifstofustjóri, sölu og markaðsstjóri Reynihlíðar hf. í Mývatnssveit, hótelsstjóri Hótels Laxár í Mývatnssveit og skrifstofustjóri Norðurþings frá 2015-2017.
Margrét sat einnig í sveitarstjórn Skútustaðahrepps á árunum 2006-2010 og gegndi þar stöðu oddvita. Hún hefur einnig mikla reynslu af nefndarstörfum í gegnum tíðina og er nú formaður stjórnar Matvælasjóðs og formaður stjórnar Náttúrustofu Norðausturlands ásamt því að sitja í stjórn Þekkingarnets Þingeyinga.
Margrét hefur mikla þekkingu á svæði því sem Þingeyjarsveit nær yfir, í gegnum búsetu og störf.
Menntun og reynsla Margrétar Hólm mun án efa nýtast vel í nýju starfi sviðsstjóra fjármála- og stjórnsýslusviðs og er hún boðin velkomin til starfa fyrir Þingeyjarsveit.
Margrét mun hefja störf í upphafi vetrar.