Fjallkonan - þú ert móðir vor kær

Forsætisráðuneytið, í samvinnu við Forlagið, hefur í tilefni 80 ára afmæli lýðveldisins gefið út bók með þjóðhátíðarljóðum og greinum um fjallkonuna  sem verði gefin landsmönnum. Bókinni verður dreift um landið og geta landsmenn nálgast hana í bókasöfnum og sundlaugum.

Titill bókarinnar er Fjallkonan. Þú ert móðir vor kær, með vísan til ljóðs Þorsteins Erlingssonar.

Forsætisráðherra ritar formála, greinahöfundar eru; Goddur, Ragnheiður Kristjánsdóttir, Silja Aðalsteinsdóttir og Áslaug Sverrisdóttir. Þýðingar á formál og útdrætti greina verða á pólsku og ensku.

Hér í Þingeyjarsveit er hægt að nálgast hana í Sundlauginni á Laugum, Íþróttamiðstöðinni í Reykjahlíð, bókasafninu og sundlauginni í Stórutjarnaskóla.