Ágætu gestir Íþróttamiðstöðvar - athugið eftirfarandi:
Að vel athuguðu máli er ákveðið að loka skuli Íþróttamiðstöðinni, sundlaug og íþróttahúsi, sunnudaga um ótilgreindan tíma í vetur. Tekur lokunin gildi frá og með sunnudeginum 06. nóvember nk. Þegar ástæða þykir til verður ákvörðunin endurskoðuð.
Eftir sem áður er opið 6 daga vikunnar í vetur með sama hætti eða: mánudaga t.o.m. fimmtudaga kl. 07:30-09:30 og 16:00-21:30, föstudaga kl. 07:30-09:30 og 15:00-19:00, laugardaga kl. 12:00-16:00.
Verið hjartanlega velkomin!