Hvað á húsið að heita?

Hvað á húsið að heita? – Nafnasamkeppi um nýtt stjórnsýsluhús Þingeyjarsveitar

Í haust tekur Þingeyjarsveit í notkun nýtt stjórnsýsluhús á Laugum. Húsið hýsti áður Litlulaugaskóla og síðar Seiglu.

Í húsinu verður stjórnsýsla sveitarfélagsins, að mestu, en auk þess verða leigð verða út skrifborð og rými sem fyrirtæki, stofnanir og einyrkjar geta nýtt sér.

Vonast er til þess að húsið verði iðandi af lífi, suðupottur hugmynda og verkefna þar sem allir eru velkomnir.

Í ljósi þessara breytinga vantar nýtt nafn á húsið. Frestur til að senda inn tillögu í samkeppni um nafn á stjórnsýsluhúsið er til og með 15. ágúst nk.

Nafn hússins verður kynnt við opnun húsnæðisins.

Hægt er að senda inn tillögu HÉR.