Kort af Þingeyjarsveit

Mývatnsstofa vinnur nú að korti af Þingeyjarsveit. Vonast er til að sem flestir vilji vera með á kortinu, gististaðir, matsölustaðir, verslanir, söfn og allt sem ferðamenn og gestir ættu að vita af. Vonast er til að kortið verði tilbúið á haustmánuðum.

Aðildarfélagar Mývatnsstofu fara sjálfkrafa inn á kortið. Aðrir áhugasamir um að vera með á kortinu eru vinsamlegast beðnir að hafa samand við info@visitmyvatn.is.