Leikskólakennari óskast til starfa við leikskólann Barnaborg í Þingeyjarskóla í Aðaldal sem fyrst. Um er að ræða 80-100% starf.
Barnaborg er önnur tveggja leikskóladeilda í Þingeyjarskóla, sem er samrekinn leik- og grunnskóli með rúmlega 100 nemendur samtals. Nemendur Barnaborgar eru 23 á aldrinum 1 árs til 5 ára. Mikið og gott samstarf er á milli leik- og grunnskólans.
Um er að ræða spennandi starf fyrir metnaðarfullan starfsmann. Leitað er að einstaklingi með góða hæfni og lipurð í samskiptum, með góða þekkingu og reynslu af leikskólastarfi. Umsóknarfrestur er til 7. febrúar 2025
Helstu verkefni og ábyrgð
Menntunar- og hæfniskröfur
Við leitum að starfsfólki sem
Lögð er áhersla á samvinnu og sameiginlega ábyrgð starfsmanna á verkefnum skólans. Gerðar eru kröfur um mikla hæfni í mannlegum samskiptum, stundvísi, hreint sakarvottorð og hafa náð þrepi C1 í íslensku.
Æskilegt er að viðkomandi geti hafið störf sem fyrst. Áhugasamir einstaklingar, án tillits til kyns, eru hvattir til að sækja um. Laun eru samkvæmt kjarasamningi Sambands íslenskra sveitarfélaga og viðeigandi stéttarfélags.
Umsóknir skulu sendast á leikskólastjóra nanna@thingskoli.is. Með umsókn skal fylgja greinargóð ferilskrá, kynningarbréf og meðmælendur. Nánari upplýsingar um leikskólann er hægt að finna á https://www.thingeyjarskoli.is/
Frekari upplýsingar gefur leikskólastjóri, Nanna Marteinsdóttir, nanna@thingskoli.is og í síma 464-3590/ 898-0790