Stefna Þingeyjarsveitar 2024-2030

Skemmtilegar staðreyndir um sveitarfélagið!
Skemmtilegar staðreyndir um sveitarfélagið!
Heildarstefna Þingeyjarsveitar 2024-2030 var samþykkt á sveitarstjórnarfundi 12. desember.
 
Mikil vinna fór í stefnumótunina sem er hin glæsilegasta og þakkir fá íbúar fyrir þá vinnu sem þeir lögðu til við gerð hennar.

Ráðgjafafyrirtækið Arcur sá um gerð stefnunnar og voru meðal annars haldnir þrír íbúafundir, fundir með fulltrúum atvinnulífsins, vinnufundir með starfsfólki sveitarfélagsins, könnun á heimasíðu sveitarfélagsins, samtal við kjörna fulltrúa og fleira.
 
Ráðgjafar Arcur kynntu stefnuna fyrir íbúum sveitarfélagsins á rafrænum fundi þann 17. desember, kærar þakkir til þeirra sem mættu og sýndu nýrri stefnu áhuga.