Um er að ræða 70% starf.
Við leitum að starfsmanni sem:
- ber virðingu fyrir börnum og hefur áhuga á að starfa með þeim, veita þeim leiðsögn og stuðning
- hefur góða samskiptahæfni og metnað til að takast á við fjölbreytt verkefni
- er sjálfstæður í vinnubrögðum og sýnir frumkvæði
- er samstarfsfús, lausnamiðaður og vill taka þátt í teymisvinnu
- er fær um að vera í samstarfi við foreldra, fagaðila og aðra ráðgjafa
- getur sinnt þeim verkefnum er varða sérkennslu og öðrum störfum innan skólans sem yfirmaður felur honum.
Menntunarkröfur:
- leyfisbréf til kennslu.
- Menntun á sviði sérkennslu, talþjálfunar eða sálfræði æskileg.
Stórutjarnaskóli stendur í Ljósavatnsskarði og er samrekinn leik- grunn- og tónlistaskóli með um 45 nemendur frá eins árs til 16 ára aldurs.
Staðan er laus frá og með 15. ágúst 2023
Umsóknarfrestur er til 03. júlí 2023
Umsóknir skulu sendar á netfangið birnada@storutjarnaskoli.is
Með umsókn þarf að fylgja ferilskrá og afrit af leyfisbréfi
Upplýsingar í síma 4643220/8483547 eða birnada@storutjarnaskoli.is