Stórutjarnaskóli í Þingeyjarsveit auglýsir eftir leikskólakennara/leikskólastarfsmanni
Stórutjarnaskóli í Þingeyjarsveit auglýsir eftir leikskólakennara/leikskólastarfsmanni í afleysingu í leikskóladeild í 80% starf sem:
- ber virðingu fyrir börnum og hefur áhuga á að starfa með þeim
- hefur góða samskiptahæfni og metnað til að takast á við fjölbreytt verkefni með nemendum.
- er jákvæður og sveigjanlegur
- er sjálfstæður í vinnubrögðum og sýnir frumkvæði
- er samstarfsfús og lausnamiðaður
- er með menntun sem nýtist í starfi
Stórutjarnaskóli stendur í Ljósavatnsskarði og er samrekinn leik- grunn- og tónlistarskóli með um 45 nemendur frá eins árs til 16 ára aldurs. Öll starfsemi skólans er í sama húsnæði. Skólinn er Grænfánaskóli og Heilsueflandiskóli og leggur áherslu á að búa nemendum og starfsfólki fjölbreytt leik- náms- og starfsumhverfi sem eflir alhliða heilsu og þroska. Mikið samstarf er milli námshópa innan skólans og er skólinn í góðu samstarfi við nágrannaskóla sína og samfélagið í sveitinni. Þá tekur Stórutjarnaskóli þátt í þróunarstarfi með skólum erlendis.
Umsóknarfrestur er til 5. desember 2022 og þarf umsækjandi að geta hafið störf sem allra fyrst.
Áhugasamir eru hvattir til að hafa samband í síma 4643220/8483547 eða í gegnum netfangið birnada@storutjarnaskoli.is
Umsóknir skulu sendar á netfangið birnada@storutjarnaskoli.is
Umsókninni þarf að fylgja ferilskrá og afrit af leyfisbréfi. Gerðar eru kröfur um hreint sakavottorð.