Fara í efni

Styrkir til íþrótta- og æskulýðsstarfs

Íþrótta-, tómstunda- og menningarnefnd Þingeyjarsveitar auglýsir eftir umsóknum um styrki vegna íþrótta- og æskulýðsstarfs á árinu 2025. Bæði einstaklingar og félagasamtök geta sótt um styrki og metur nefndin hvaða verkefni eru styrkhæf og hver ekki. Styrkþegar þurfa að hafa lögheimili í Þingeyjarsveit. Félagasamtök þurfa að skila inn ársreikningi liðins árs með umsókn. Þá ber öllum að skila inn til nefndarinnar greinargerð um framgang verkefnis og ráðstöfun styrkfjár innan árs frá styrkveitingu. Umsóknum skal skilað á heimasíðu Þingeyjarsveitar, smella hér. Umsóknir og fylgiskjöl skulu berast í síðasta lagi 1. apríl n.k. Reglur um úthlutun styrkja má finna hér.

Ath. minnum styrkþega 2024 á að skila inn greinargerð um framgang verkefnis og ráðstöfun styrkfjár í viðhengi með umsókn ef greinargerð hefur ekki þegar borist nefndinni.

Íþrótta- tómstunda- og menningarnefnd Þingeyjarsveitar

Getum við bætt efni þessarar síðu?