Húsnæðiskönnun Þingeyjarsveitar

Mynd: KIP
Mynd: KIP

Þingeyjarsveit stendur nú fyrir könnun um húsnæðismál í sveitarfélaginu. Könnunin er hluti af markvissu starfi sveitarfélagsins við að greina stöðuna á húsnæðismarkaði og vinna að raunhæfum lausnum sem mæta þörfum íbúa.

Þátttaka íbúa í könnuninni er afar mikilvæg þar sem niðurstöðurnar nýtast sveitarstjórn til að leggja grunn að áframhaldandi húsnæðisuppbyggingu í sveitarfélaginu.

Það tekur 2-3 mínútur að svara könnuninni, öll svör eru nafnlaus og ekki rekjanleg til einstakra þátttakenda.

Ef einhverjar spurningar eða athugasemdir vakna varðandi framkvæmd könnunarinnar, er íbúum bent á að hafa samband við skrifstofu sveitarfélagsins í gegnum netfangið thingeyjarsveit@thingeyjarsveit.is 

Könnunin verður opin til 20. febrúar nk. 

Sveitarfélagið hvetur alla íbúa til að taka þátt og hjálpa til við að móta framtíðina!

Könnunina má finna hér: https://www.surveymonkey.com/r/husnaedi