Þingeyjarskóli í Þingeyjarsveit auglýsir eftir leikskólakennara/leikskólastarfsmanni í 100% starf við leikskóladeildina Barnaborg við Þingeyjarskóla.
Staðan er áætluð frá og með 1. janúar 2023.
Við leitum að starfsmanni sem:
Þingeyjarskóli er samrekinn leik-, grunn- og tónlistarskóli með rétt um 100 nemendur. Þar af tæplega 30 leikskólanemendur á tveimur starfsstöðvum. Áhersla er lögð á teymisvinnu og fjölbreytta kennsluhætti innan skólans sem og að skapa leik- og námsumhverfi sem auðgar bernsku barna og örvar þroska þeirra.
Lögð er áhersla á samvinnu og sameiginlega ábyrgð starfsmanna á verkefnum skólans.
Gerðar eru kröfur um mikla hæfni í mannlegum samskiptum, stundvísi og hreint sakavottorð.
Áhugasamir einstaklingar, án tillits til kyns, eru hvattir til að sækja um.
Umsóknarfrestur er til 1. desember 2022.
Umsóknir skulu sendast á netfangið johannrunar@thingeyjarskoli.is
Nánari upplýsingar veitir Jóhann Rúnar Pálsson skólastjóri í vs 4643580 /8990702 eða í gegnum netfangið johannrunar@thingeyjarskoli.is eða Nanna Marteinsdóttir deildarstjóri Barnaborgar í vs. 4643590/8626483 eða í gegnum netfangið nanna@thingskoli.is