Þingeyjarskóli í Þingeyjarsveit auglýsir eftir stuðningsfulltrúa.
Þingeyjarskóli í Þingeyjarsveit auglýsir eftir stuðningsfulltrúa á leikskóladeildina Barnaborg við Þingeyjarskóla.
Um 100% starf er að ræða.
Við leitum að starfsmanni sem:
- Treystir sér í faglega og metnaðarfulla vinnu
- Er lausnamiðaður
- Er sveigjanlegur og með góða samskiptahæfni
- Er sjálfstæður í vinnubrögðum og sýnir/býr yfir frumkvæði
- Hefur metnað til að takast á við ný og spennandi verkefni
- Vill taka þátt í samstarfi og teymisvinnu
- Ber virðingu fyrir börnum og hefur áhuga á að starfa með þeim
Þingeyjarskóli er samrekinn leik-, grunn- og tónlistarskóli með rétt um 100 nemendur. Þar af rúmlega 30 leikskólanemendur á tveimur starfsstöðvum. Áhersla er lögð á teymisvinnu og fjölbreytta kennsluhætti innan skólans sem og að skapa leik- og námsumhverfi sem auðgar bernsku barna og örvar þroska þeirra.
Lögð er áhersla á samvinnu og sameiginlega ábyrgð starfsmanna á verkefnum skólans.
Gerðar eru kröfur um mikla hæfni í mannlegum samskiptum, stundvísi og hreint sakavottorð.
Áhugasamir einstaklingar, án tillits til kyns, eru hvattir til að sækja um.
Æskilegt væri að viðkomandi gæti hafið störf sem fyrst.
Umsóknir skulu sendast á netfangið johannrunar@thingeyjarskoli.is
Nánari upplýsingar veitir Jóhann Rúnar Pálsson skólastjóri í vs 4643580 /8990702 eða í gegnum netfangið johannrunar@thingeyjarskoli.is