Útboð á innan- og utanhússfrágangi á nýju stjórnsýsluhúsi í Þingeyjarsveit
Innan- og utanhússfrágangur á nýju stjórnsýsluhúsi í Þingeyjarsveit
Útboð 2
Yfirlit yfir verkið
Verkið felst í því að innrétta gamla Litlulaugaskóla í Reykjadal Þingeyjarsveit, mhl 01, 3ja hæða, skráð stærð 764m2
Helstu liðir: Ný gólfefni samtals um 470 m2 setja í um 30 stk. innihurðir, stúka niður húsið í skrifstofur með ýmist léttum gifsveggjum og glerveggjum, endurnýja allt rafmagns, hita og neysluvatnskerfi, samkvæmt teikningum og verklýsingum.
Verkefnið er auglýst á heimasíðu Þingeyjarsveitar www.thingeyjarsveit.is og www.utbodsvefur.is frá og með 21. des. 2023 gögn eru afhent rafrænt.
- Fyrirspurnir berist 7 dögum fyrir opnun tilboða.
- Fyrispurnum verður svarað 4 dögum fyrir opnun tilboða.
- Opnun tilboða 31. janúar 2024.
- Verklok 1. ágúst 2024.
- Verðlagsgrundvöllur: Verk verðbætist ekki.
- Frávikstilboð: Eru ekki heimil.
Útboðsgögn eru tilbúin og hægt að nálgast þau með að senda tölvupóst á stakur@stakur.is
Þegar óskað er eftir útboðsgögnum skal eftirfarandi koma fram með tölvupósti
- Nafn fyrirtækis.
- Nafn umsjónaraðila fyrirtækisins sem óskar gagna.
- Símanúmer umsjónaraðila fyrirtækisins sem óskar gagna.
- Netfang umsjónaraðila fyrirtækisins sem óskar gagna.