Atvinnu- og nýsköpunarnefnd Þingeyjarsveit
Dagskrá
1.Flugklasinn - stöðuskýrsla
Málsnúmer 2310056Vakta málsnúmer
Hjalti Páll Þórarinsson kom til fundar og fór yfir starf og stöðu flugklasans.
Atvinnu- og nýsköpunarnefnd þakkar Hjalta Páli greinargóða kynningu og ljóst er að klasinn hefur skilað árangri á svæðinu. Atvinnu- og nýsköpunarnefnd leggur áherslu á að starfsemi klasans haldi áfram til lengri tíma.
2.Refa- og minkaveiði - fyrirkomulag
Málsnúmer 2309084Vakta málsnúmer
Samkvæmt nýjum reglum sveitarfélagsins um refa- og minkaveiði var auglýst eftir veiðifólki á heimasíðu sveitarfélagsins og samfélagsmiðlum með umsóknarfresti til 6. janúar sl. Auglýst voru sjö svæði og bárust 10 umsóknir um sex svæði.
Allir umsækjendur uppfylla þær kröfur sem settar voru fram í auglýsingu. Atvinnu- og nýsköpunarnefnd leggur til að eftirtaldir aðilar verði ráðnir til veiða í sveitarfélaginu 2025-2028.
Refaveiðar:
Svæði 1 - Hrafn Jóhannesson og Davíð Jens Hallgrímsson
Svæði 2 - Bragi Kárason og Steingrímur Vésteinsson
Svæði 3 - Gunnar Óli Hákonarson
Svæði 4 - Engin umsókn barst um þetta svæði
Svæði 5 - Ingvi Reynir Berndsen
Svæði 6 - Benedikt Hrólfur Jónsson og Tómas Gunnarsson
Svæði 7 - Benedikt Hrólfur Jónsson og Tómas Gunnarsson
Svæði 8 - Gunnólfur Sveinsson, Garðar Jónsson og Jón Snorri Þorsteinsson
Atvinnu- og nýsköpunarnefnd leggur til að svæði 4 verði sameinað svæði 1. Sviðsstjóra er falið að ræða við umsækjendur um svæði 1.
Minkaveiðar:
Svæði 1 - Gunnar Óli Hákonarson
Svæði 2 - Engin umsókn barst
Svæði 3 - Gunnar Óli Hákonarson
Svæði 4 - Engin umsókn barst
Svæði 5 - Gunnar Óli Hákonarson
Svæði 6 - Benedikt Hrólfur Jónsson og Tómas Gunnarsson
Svæði 7 - Benedikt Hrólfur Jónsson og Tómas Gunnarsson
Svæði 8 - Sigurlína Tryggvadóttir
Lagt er til að svæði 4 verði sameinað svæði 1. Sviðsstjóra er falið að ræða við umsækjendur um þau svæði sem ekki bárust umsóknir um.

3.Atvinnu- og nýsköpunarnefnd - starfsáætlun
Málsnúmer 2501020Vakta málsnúmer
Starfsáætlun atvinnu- og nýsköpunarnefndar febrúar - júlí 2025.
Atvinnu- og nýsköpunarnefnd vann að starfsáætlun nefndarinnar fram að sumarfríi.
4.Stefna Þingeyjarsveitar 2024-2030
Málsnúmer 2401083Vakta málsnúmer
Lögð fram til kynningar stefna Þingeyjarsveitar sem samþykkt var á 53. fundi sveitarstjórnar þann 12. desember sl.
Fundi slitið - kl. 12:30.