Skipulagsnefnd - 33
Málsnúmer 2502007F
Vakta málsnúmerSveitarstjórn Þingeyjarsveitar - 56. fundur - 27.02.2025
Fyrir sveitarstjórn liggur til staðfestingar fundargerð 33. fundar skipulagsnefndar. Fundargerðin er í sex liðum. Liðir fimm og sex þarfnast afgreiðslu sveitarstjórnar.
-
Skipulagsnefnd - 33 Skipulagsnefnd samþykkir útgáfu framkvæmdarleyfis, að fengnu leyfi Vegagerðarinnar þar sem framkvæmdirnar eru innan veghelgunarsvæðis. Skipulagsnefnd, í samræmi við viðauka 1.1 í samþykkt um stjórn og fundarsköp Þingeyjarsveitar nr. 975/2022, felur skipulagsfulltrúa að gefa framkvæmdaleyfi út, fyrir reiðveg, hestagerði og efnistöku í námum E-19 og E-20 að hámarki 500 m3 úr hvorri, í samræmi við reglugerð um framkvæmdaleyfi nr. 772/2012 og 13. - 16. gr. skipulagslaga nr. 123/2010. Bókun fundar Staðfest.
-
Skipulagsnefnd - 33 Skipulagsnefnd samþykkir að grenndarkynna áformin hagsmunaaðilum samkvæmt 2. mgr. 44. gr. skipulagslaga nr. 123/2010 þegar fullnægjandi gögn hafa borist. Byggingafulltrúa er falið að gefa út byggingaleyfi ef engar athugasemdir berast við grenndarkynningu. Bókun fundar Staðfest.
-
Skipulagsnefnd - 33 Skv. fornleifaskráningu er Sauðahellir ekki í hættu vegna fyrirhugaðra framkvæmda. Skipulagsnefnd telur að fyrirhuguð framkvæmd sé ekki framkvæmdaleyfisskyld með tilliti til umfangs framkvæmdar, varanleika og áhrifa á landslag og ásýnd umhverfis og önnur umhverfisáhrif, enda verði farið eftir lýsingu á fyrirhugaðri framkvæmd varðandi fráveitu. Bókun fundar Staðfest.
-
Skipulagsnefnd - 33 Skipulagsnefnd samþykkir að stofnuð verði lóð undir spennistöð RARIK í Kvíhólsmýri. Byggingarfulltrúa er falið að vinna að stofnun lóðarinnar. Bókun fundar Staðfest.
-
Skipulagsnefnd - 33 Skipulagsnefnd samþykkir óverulega breytingu á aðalskipulagi í samræmi við 2. mgr. 36. gr. skipulagslaga. Málinu vísað til sveitarstjórnar. Bókun fundar Sveitarstjórn samþykkir óverulega breytingu á aðalskipulagi í samræmi við 2. mgr. 36. gr. skipulagslaga.
Samþykkt samhljóða. -
Skipulagsnefnd - 33 Skipulagsnefnd leggur til við sveitarstjórn að hún samþykki tillögu að deiliskipulagsbreytingu Voga 1 skv. 3. mgr. 41. gr. skipulagslaga nr. 123/2010. Svör við athugasemdum verða birt í skipulagsgátt. Bókun fundar Sveitarstjórn samþykkir tillögu að deiliskipulagsbreytingu Voga 1 skv. 3. mgr. 41. gr. skipulagslaga nr. 123/2010.
Samþykkt samhljóða