Afsláttur af gatnagerðagjöldum

Reykjahlíð. Mynd: Marcin Kozaczek
Reykjahlíð. Mynd: Marcin Kozaczek

Íbúum sveitarfélagsins hefur fjölgað jafnt og þétt síðustu ár og samhliða því orðið sífellt meiri eftirspurn eftir húsnæði. Vegna þessarar miklu eftirspurnar samþykkir sveitarstjórn Þingeyjarsveitar tímabundna heimild til niðurfellingar gatnagerðagjalda. Tíðindin eru hin gleðilegustu og liðka vonandi til fyrir þeim sem vilja byggja. 

Sveitarstjórn samþykkir að eftirfarandi ákvæði gildi um úthlutun allt að sex íbúðarhúsalóða í Þingeyjarsveit.

  • Lóðirnar sem um ræðir verða skilgreindar á lista sem sveitarstjórn samþykkir.
  • Afslátturinn gildir til 31. desember 2024.
  • Umsóknir sem berast á umsóknarfresti verða afgreiddar af skipulagsnefnd í þeirri röð sem þær berast og staðfestar af sveitarstjórn.
  • Við úthlutun lóðanna skulu gilda ákvæði um að umsækjandi hefur sex mánuði frá úthlutunardegi til að skila inn fullnægjandi byggingarnefndarteikningum og umsókn um byggingarleyfi. Byggingaframkvæmdir skulu hafnar innan árs frá úthlutun og að byggingar skulu hafa hlotið fokheldisvottorð innan tveggja ára, að öðrum kosti fellur niður ákvæði um afslátt gatnagerðagjalda.

Sveitarstjórn samþykkir fyrirliggjandi ákvæði um afslátt gatnagerðargjalda og lista yfir þær lóðir sem samþykktin nær til og felur sveitarstjóra að auglýsa hana.

 

Lóðir sem afsláttur gatnagerðagjalda nær yfir:

Reykjahlíð

  • Klappahraun 3
  • Klappahraun 7

Laugar

  • Lautavegur 12
  • Lautavegur 14

Stórutjarnir

  • Melgata 2
  • Melgata 4