Starf forstöðumanns Sundlaugarinnar á Laugum laust til umsóknar
04.01.2018
Þingeyjarsveit auglýsir laust til umsóknar starf forstöðumanns við sundlaugina á Laugum. Helstu verkefni eru umsjón með starfsemi og rekstri sundlaugarinnar, starfsmannahald, skipulag vakta o.fl. Æskilegt að viðkomandi geti hafið störf sem fyrst.
Menntunar- og hæfniskröfur:
- Staðlað sundpróf og skyndihjálp
- Þekking og reynsla sem nýtist í starfsemi sundlauga
- Jákvæðni og góðir samskiptahæfileikar
- Frumkvæði, sjálfstæði og skipulagshæfni
Nánari upplýsingar veitir sveitarstjóri í síma 464 3322 og 862 0025
Umsóknarfrestur er til 25. janúar n.k. Umsóknir með upplýsingum um menntun og starfsreynslu berist skriflega til sveitarstjóra, Kjarna, 650 Laugar, netfang dagbjort@thingeyjarsveit.is