INNVIÐARÁÐHERRA SÉRSTAKUR GESTUR Á SAMRÁÐSFUNDI MEÐ ÍBÚUM

Undirbúningsstjórn um sameiningu Skútustaðahrepps og Þingeyjarsveitar boðar til íbúafundar um stöðu, stefnu og tækifæri í sameinuðu sveitarfélagi miðvikudaginn 9. febrúar kl. 16:30 – 18:00 í Skjólbrekku, en fundurinn verður einnig sendur út á Facebook síðu Skútustaðahrepps. Linkur inn á fundinn.

Sérstakur gestur fundarins verður Sigurður Ingi Jóhannsson, innviðaráðherra og ráðherra sveitarstjórnarmála sem tengist stafrænt inn á fundinn.

Erindi:

  • Stuð og stefna: Arnór Benónýsson – oddviti Þingeyjarsveitar
  • Sveitarfélög til framtíðar: Sigurður Ingi Jóhannsson – innviðaráðherra
  • Hvað á barnið að heita: Róbert Ragnarsson – RR ráðgjöf
  • Nýja stjórnarskráin: Tryggvi Þórhallsson – lögmaður sameinaðs sveitarfélags
  • Tækifæri í sameinuðu sveitarfélagi: Helgi Héðinsson – oddviti Skútustaðahrepps
  • Menntasókn í Norðri: Kristrún Birgisdóttir – eigandi og framkvæmdastjóri Ásgarðs
  • Nýsköpun í Norðri: Sveinn Margeirsson – sveitarstjóri Skútustaðahrepps
  • Gaman í Gíg: Anna Þorsteinsdóttir – Þjóðgarðsvörður

Ath.!  Slóð inn á fundinn er hér