Leikskólinn Barnaborg í Þingeyjarskóla auglýsir eftir leikskólakennara
Um er að ræða 100% starf við leikskólann Barnaborg í Aðaldal sem er hluti af Þingeyjarskóla, samreknum leik- og grunnskóla. Í Barnaborg eru 25 börn á aldrinum 1 árs til 5 ára. Lögð er áhersla á að skapa leik- og námsumhverfi sem auðgar bernsku barna og örvar þroska þeirra.
Ráðið er í starfið frá 1. október 2024 eða eftir samkomulagi.
Helstu verkefni og ábyrgð
- Vinnur að uppeldi og menntun leikskólabarna samkvæmt starfslýsingu leikskólakennara þ.m.t. að taka þátt í skipulagningu faglegs starfs og foreldrasamstarfi.
Menntunar og hæfniskröfur
- Leyfisbréf til kennslu (leyfisbréf fylgi umsókn) eða menntun sem nýtist í starfi.
- Reynsla af starfi á leikskólastigi er æskileg.
- Áhugi á starfi með börnum og velferð þeirra.
- Lipurð og mikil hæfni í mannlegum samskiptum.
- Ábyrgð, samviskusemi og stundvísi.
- Hreint sakavottorð.
Fáist ekki starfsmaður með leyfisbréf til kennslu er leitað eftir einstaklingi með aðra menntun og/eða reynslu sem nýtist í starfi sbr. lög nr. 95/2019.
Þingeyjarskóli er samrekinn leik-, grunn- og tónlistarskóli með rétt um 100 nemendur. Þar af tæplega 30 leikskólanemendur á tveimur starfsstöðvum. Áhersla er lögð á teymisvinnu og fjölbreytta kennsluhætti innan skólans. Áhugasamir einstaklingar, án tillits til kyns, eru hvattir til að sækja um.
Umsóknarfrestur er til 23. september 2024
Nánari upplýsingar veitir Nanna Marteinsdóttir leikskólastjóri í síma 464-3590 eða í gegnum netfangið nanna@thingskoli.is