Opið hús verður eins og áður alltaf á þriðjudögum:
Þingeyjarskóli 16.jan. 6.feb. 27.feb. 20.mar. 24.apríl
Seigla 23.jan. 13.feb. 6.mar. 10.apr. 8.maí
Stórutjarnaskóli 30.jan. 20.feb. 13.mar. 17.apr. 15.maí
Í Reykjadal verður Opið hús áfram í Seiglu. Þægilegast er að keyra upp að skóla að austan og ganga þar inn.
Hádegismatur er í boði á öllum stöðum kl. 13:00 og kostar 750 kr.
Það er nauðsynlegt að láta vita fyrir hádegi daginn áður ef fólk vill fá hádegismat.
Þingeyjarskóli sími 464-3583
Seigla sími 464-3166
Stórutjarnaskóli sími 464-3222
Boccia hefst kl. 12:00 í Stórutjarnaskóla þegar Opið hús er þar.
Dagskrá hefst alls staðar kl. 13:45.
Það verður ýmislegt til skemmtunar s.s. söngur, hljóðfæraleikur, myndasýningar og upplestur. Eins og áður verður spiluð félagsvist í Stórutjarnaskóla. Það er líka hægt að hittast og spjalla saman eða hafa meðferðis handavinnu. Ef einhverjir vilja koma með og flytja efni til skemmtunar og fróðleiks þá er það að sjálfsögðu vel þegið.
Opið hús er á vegum Þingeyjarsveitar og fólk þarf ekki að vera í Félagi eldri borgara til þess að taka þátt.
Allir eru hjartanlega velkomnir.
Umsjónarfólk :
Anita Þórarinsdóttir sími 464-3286 og 894-3286
Ólína Arnkelsdóttir sími 464-3608 og 865-8882
Halla L. Loftsdóttir sími 464-3562 og 867-6747