Skrifstofur lokaðar vegna flutninga

Mynd tekin í nýju stjórnsýsluhúsi á Laugum
Mynd tekin í nýju stjórnsýsluhúsi á Laugum

Á morgun, fimmtudag (19. sept), verða skrifstofur Þingeyjarsveitar lokaðar eftir hádegi og einnig allan föstudaginn (20. sept) vegna flutninga í nýtt og glæsilegt stjórnsýsluhús á Laugum. Símtölum verður svarað eins og kostur er. Starfsfólk sveitarfélagsins mun nýta tímann til að koma sér vel fyrir í nýju húsnæði og tryggja að þjónustan gangi snurðulaust fyrir sig þegar opnað verður á ný.

Beðist er velvirðingar á þeim óþægindum sem þetta kann að valda íbúum og við þökkum skilninginn og þolinmæðina. Skrifstofurnar munu opna á ný næsta mánudag, en þá mun starfsfólkið taka á móti erindum með bros á vör í nýrri og glæsilegri aðstöðu.