Stöðu leikskólakennara
Stöðu íþróttakennara
Stöðu námsráðgjafa (20% starf)
Við leitum að kennurum sem:
- Treysta sér í faglega og metnaðarfulla vinnu
- Hafa lausnamiðaða nálgun á viðfangsefnum
- Eru sveigjanlegir og með góða samskiptahæfni
- Eru sjálfstæðir í vinnubrögðum og sýna/búa yfir frumkvæði
- Hafa metnað til að takast á við ný og spennandi verkefni
- Vilja taka þátt í teymisvinnu
Þingeyjarskóli er samrekinn leik-, grunn- og tónlistarskóli með rétt um 100 nemendur. Þar af tæplega 30 leikskólanemendur á tveimur starfsstöðvum.
Áhersla er lögð á teymisvinnu og fjölbreytta kennsluhætti innan skólans. Rík tónlistarhefð er við skólann.
Lögð er áhersla á samvinnu og sameiginlega ábyrgð starfsmanna á verkefnum skólans.
Gerðar eru kröfur um mikla hæfni í mannlegum samskiptum, stundvísi og hreint sakavottorð.
Möguleiki er á húsnæði á staðnum.
Stöðurnar eru lausar frá og með 1. ágúst 2018
Umsóknarfrestur er til 22. apríl 2018
Umsóknir skulu sendast á netfangið johannrunar@thingeyjarskoli.is
Nánari upplýsingar veitir Jóhann Rúnar Pálsson skólastjóri í vs 4643580 /8990702 eða í gegnum netfangið johannrunar@thingeyjarskoli.is