Utankjörfundaratkvæðagreiðsla
Utankjörfundaratkvæðagreiðsla vegna kosninga um sameiningu sveitarfélaganna Skútustaðahrepps og Þingeyjarsveitar laugardaginn 5. júní 2021.
Atkvæðagreiðsla utan kjörfundar fer fram á skrifstofum embættisins á afgreiðslutíma, mánudaga til fimmtudaga 9:00 - 15:00 og föstudögum kl. 9:00 - 14:00, á
- Akureyri, Hafnarstræti 107.
- Húsavík, Útgarði 1.
- Siglufirði, Gránugötu 6.
- Þórshöfn, Fjarðarvegi 3.
Atkvæðagreiðsla fer einnig fram sem hér segir:
- Skútustaðahreppur: Hlíðarvegi 6, Reykjahlíð, og
- Þingeyjarsveit: Kjarna, Laugum í Reykjadal:
Miðvikudaginn 26. maí frá kl. 10:00 – 15:00
Þriðjudaginn 1. júní frá kl. 10:00 – 15:00
Miðvikudaginn 2. júní frá kl. 10:00 – 15:00
Fimmtudaginn 3. júní frá kl. 10:00 – 15:00
Utankjörfundaratkvæðagreiðsla á sjúkrastofnunum mun fara fram í samráði við forstöðumenn þeirra og verður auglýst frekar innan viðkomandi stofnana.
Ósk um atkvæðagreiðslu í heimahúsi vegna sjúkdóms, fötlunar eða barnsburðar skal hafa borist sýslumanni á sérstöku eyðublað eigi síðar en 1. júní 2021 kl. 16:00.
Kjósendur eru minntir á að hafa persónuskilríki meðferðis.
Hægt er að kjósa utan kjörfundar hjá öllum sýslumannsembættum landsins.
17. maí 2021
Sýslumaðurinn á Norðurlandi eystra
Svavar Pálsson