Viðbragðshópur vegna kuldatíðar

Settur hefur verið á laggirnar viðbragðshópur á vegum stjórnvalda vegna erfiðleika sem skapast hafa í landbúnaði vegna kuldatíðar undanfarið. Frá þessu segir á vef Stjórnarráðsins. Í hópnum sitja fulltrúar matvæla- og innviðaráðuneyta, Bændasamtakanna, Ráðgjafarmiðstöðvar landbúnaðarins, Almannavarna og lögregluembættanna á Norðurlandi vestra og eystra. Fleiri kunna að koma að verkefninu eftir því sem því vindur fram. Hópurinn hefur þegar fundað en ljóst er að kuldakastið hefur þegar haft verulega neikvæð áhrif á starfsemi bænda, bæði til skemmri og lengri tíma.

Fyrsta skrefið í vinnu hópsins er að hafa samband við bændur á þeim svæðum þar sem ástandið er verst til að kortleggja og skipuleggja viðbrögð við bráðavanda eins og velferð og fóðrun búfjár sem komið hefur til vegna veðursins. Bændur hafa haft frumkvæði að því á ákveðnum svæðum en nauðsynlegt er að fara yfir heildarstöðuna. Langtímaáhrif eins og á uppskeru og afurðir munu ekki verða ljós fyrr en líður á sumarið, jafnvel ekki fyrr en í haust.

Einnig liggur fyrir að verulegt kaltjón hefur orðið á ræktarlöndum á mörgum sömu svæðum og er vinna hafin vegna þess hjá Bjargráðasjóði.

Bændasamtökin hafa sett upp sérstaka vefsíðu þar sem bændur geta nálgast upplýsingar um framvindu mála.