Fræðslu- og velferðarnefnd Þingeyjarsveit
Dagskrá
1.Merking skólabíls - umsögn við undanþágubeiðni
Málsnúmer 2502066Vakta málsnúmer
Erindi frá Helen Jónsdóttur varðandi merkingar skólabíls. Helen er að biðja um umsögn nefndarinnar um fyrirhugaða undanþágubeiðni skv. reglugerð nr. 279/1989 um merkingar á skólabílum.
Fræðslu- og velferðarnefnd telur mikilvægt að skólabílar séu auðkenndir enda varðar það öryggi nemenda. Nefndin getur því ekki veitt jákvæða umsögn við erindinu eins og það liggur fyrir.
2.Merking skólabíls - umsögn við undanþágubeiðni
Málsnúmer 2503028Vakta málsnúmer
Erindi frá Sigurði Arnari Jónssyni varðandi merkingar skólabíls. Sigurður er að biðja um umsögn nefndarinnar um fyrirhugaða undanþágubeiðni skv. reglugerð nr. 279/1989 um merkingar á skólabílum.
Fræðslu- og velferðarnefnd telur mikilvægt að skólabílar séu auðkenndir enda varðar það öryggi nemenda. Nefndin getur því ekki veitt jákvæða umsögn við erindinu eins og það liggur fyrir.
3.Leikskólastarf - skipulag
Málsnúmer 2501059Vakta málsnúmer
Umræðu um skipulag leikskólastarfs í Þingeyjarsveit framhaldið frá síðasta fundi.
Málin rædd ítarlega og umræðum frestað til næsta fundar.
4.Gæða- og eftirlitsstofnun velferðarmála - frumkvæðisathugun á stoð- og stuðningsreglum sveitarfélaga
Málsnúmer 2502070Vakta málsnúmer
Fyrir fræðslu- og velferðarnefnd liggur mál til kynningar frá Gæða- og eftirlitsstofnun velferðarmála, frumkvæðisathugun á stoð- og stuðningsþjónustureglum sveitarfélaga
Lagt fram til kynningar.
5.Gæða- og eftirlitsstofnun velferðarmála - frumkvæðisathugun á akstursþjónustu sveitarfélaga
Málsnúmer 2503025Vakta málsnúmer
Fyrir fræðslu- og velferðarnefnd liggur mál til kynningar frá Gæða- og eftirlitsstofnun velferðarmála, frumkvæðisathugun á akstursþjónustu sveitarfélaga.
Lagt fram til kynningar.
Að dagskrá lokinni gekk Lilja Friðriksdóttir skólastjóri með nefndinni um húsnæði skólans og sagði frá skólastarfi það sem af er vetri.
Fundi slitið - kl. 16:30.
Lilja Friðriksdóttir og Nanna Marteinsdóttir fyrir skólastjórnendur
Katla Valdís Ólafsdóttir fyrir kennara
Kristrún Kristjánsdóttir fyrir starfsfólk leikskóla
Erna María Halldórsdóttir fulltrúi foreldra