Fundargerð
Byggðarráð
09.01.2025
33. fundur
Byggðarráð
haldinn í Þingey fimmtudaginn 09. janúar kl. 13:30
Jóna Björg Hlöðversdóttir
Gerður Sigtryggsdóttir
Eyþór Kári Ingólfsson
Ragnheiður Jóna Ingimarsdóttir
Formaður setti fund og óskað eftir að bæta á dagskrá lið ábending - vegamót við Laxárbrú. Samþykkt samhljóða.
Dagskrá:
1. |
Pólarhestar ehf. - Vegna gistingar að Breiðumýri - 2412018 |
|
Lagt fram bréf frá Stefáni Kristjánssyni f.h. Pólarhesta þar sem óskað er eftir því við sveitarstjórn að endurskoða ákvörðun um breytingu á leigu á Breiðumýri þar sem þegar er búið að selja í ferðir fyrirtækisins í sumar. |
||
Byggðarráð felur sviðsstjóra fjármála- og stjórnsýslusviðs að ræða við bréfritara og umsjónarmenn Breiðumýrar varðandi úrlausn málsins. |
||
Samþykkt |
||
|
||
2. |
Foreldrafélag Barnaborgar - Ýdalir, beiðni um aðstöðu til að hafa fjölskyldumorgna - 2412031 |
|
Foreldrafélag Barnaborgar hefur hug á að bjóða foreldrum og börnum mánaðarlega í fjölskyldumorgna í Ýdölum. Beðið er um afnot af salnum. |
||
Byggðarráð telur jákvætt að stuðlað sé að hreyfingu allra aldurshópa og er það í anda Heilsueflandi samfélags. Byggðarráð samþykkir að beiðni foreldrafélags Barnaborgar falli undir stakan æfingatíma í gjaldskrá Ýdala. |
||
|
||
3. |
Boð á rafrænt aukaþing SSNE - 2412032 |
|
Lagt fram til kynningar bréf frá framkvæmdastjóra SSNE þar sem boðað er til rafræns aukaþings á Teams þann 7. janúar nk. Vakin er athygli á því á þingið er öllum opið. |
||
Fulltrúar Þingeyjarsveitar á þingi SSNE eru Gerður Sigtryggsdóttir, Knútur Emil Jónasson og Jóna Björg Hlöðversdóttir. |
||
Lagt fram |
||
|
||
4. |
Brák hses - Boð á ársfund - 2412035 |
|
Lagt fram boð á ársfund Brákar íbúðafélags hses sem haldinn verður 15. janúar nk. á Teams. |
||
Byggðarráð felur sveitarstjóra að sitja fundinn fyrir hönd Þingeyjarsveitar. |
||
|
||
5. |
Beiðni um tilnefningar í svæðisráð vestursvæðis í Vatnajökulsþjóðgarði 2025-2029 - 2412038 |
|
Með lögum um Náttúruverndarstofnun, nr. 111/2024 sem samþykkt voru á Alþingi 23. júní sl. og taka gildi 1. janúar nk. verður Vatnajökulsþjóðgarður hluti af Náttúruverndarstofnun. |
||
Byggðarráð leggur til að skipan verði óbreytt og Þorlákur Páll Jónsson verði aðalmaður og Anna Bragadóttir varamaður. |
||
|
||
6. |
Reglur um birtingu skjala á vef Þingeyjarsveitar - 2501002 |
|
Lögð fram drög að reglum um birtingu skjala á vef Þingeyjarsveitar. |
||
Byggðarráð samþykkir fyrir sitt leyti framlögð drög með áorðnum breytingum og vísar þeim til sveitarstjórnar. |
||
|
||
7. |
Skýrsla yfirkjörstjórnar vegna alþingiskosninga 2024 - 2501003 |
|
Lögð fram skýrsla skýrsla yfirkjörstjórnar vegna alþingiskosninga 30. nóvember sl. |
||
Byggðarráð þakkar yfirkjörstjórn greinargóða skýrslu og gagnlegar ábendingar. Byggðarráð leggur til við sveitarstjórn að unnin verði tillaga að framtíðarfyrirkomulagi kosninga í Þingeyjarsveit. |
||
Samþykkt |
||
|
||
8. |
Auglýsing um skrá yfir störf undanþegin verkfallsheimild - 2501001 |
|
Fyrir byggðarráði liggur til staðfestingar listi sveitarfélagsins yfir störf sem undanþegin eru verkfallsheimild. |
||
Byggðarráð samþykkir fyrirliggjandi lista og vísar honum til staðfestingar sveitarstjórnar. |
||
|
||
9. |
Mývetningur - endurnýjun snjótroðara - 2501004 |
|
Lagt fram bréf frá stjórn Mývetnings þar sem óskað er eftir aðkomu sveitarfélgsins að endurnýjun snjótroðara fyrir skíðasvæðið við Kröflu. |
||
Byggðarráð þakkar erindið og elju Mývetnings í að reka skíðasvæði við Kröflu og telur byggðarráð mikilvægt að tryggt verði að svo sé áfram og felur sveitarstjóra að ræða við stjórn Mývetnings. |
||
Samþykkt |
||
|
||
10. |
Heitloftsþurrkun fiskafurða á Laugum - 2409044 |
|
Frestað |
||
|
||
11. |
Ábending - Vegamót við Laxárbrú - 2501012 |
|
Lagt fram bréf frá Huldu Maríu Þorkelsdóttur f.h. Slysavarnardeildarinnar Hringsins þar sem lýst er yfir áhyggum af umferðaröryggi á vegamótum við brúna yfir Laxá í Mývatnssveit vegna tíðra umferðaslysa. |
||
Byggðarráð tekur undir áhyggjur Slysavarnardeildarinnar Hringsins yfir umferðaöryggi á vegamótun við brúna yfir Laxá. Jafnframt lýsir byggðarráð yfir áhyggjum af sambærilegum gatnamótum víðar í sveitarfélaginu. Nú er unnið að umferðaröryggisáætlun fyrir sveitarfélagið og hvetur byggðarráð Vegagerðina að bæta umferðaöryggi í sveitarfélaginu. |
||
Samþykkt |
||
|
||
12. |
Kvenfélag Mývatnssveitar - Umsagnarbeiðni vegna tækifærisleyfis - 2501006 |
|
Fyrir byggðarráði liggur beiðni um umsögn vegna umsóknar Kvenfélags Mývatnssveitar um tækifærisleyfi vegna þorrablóts sem haldið verður í Skjólbrekku í Mývatnssveit 25. janúar 2025. |
||
Byggðarráð gerir ekki athugasemd fyrir sitt leyti en leita þarf staðfestingar sveitarstjórnar í tölvupósti þar sem viðburðurinn fer fram fyrir næsta reglulega sveitarstjórnarfund. |
||
Samþykkt |
||
|
Fundi slitið kl. 15:30.
Fyrirvari:
Athugið að afgreiðslur nefnda þarfnast almennt staðfestingar sveitarstjórnar, nema í þeim tilfellum þar sem nefnd hefur verið veitt heimild til fullnaðarafgreiðslu mála í samþykktum sveitarfélagsins.