34. fundur

Fundargerð

Byggðarráð

23.01.2025

34. fundur

Byggðarráð

haldinn í Þingey fimmtudaginn 23. janúar kl. 13:30

Fundarmenn

Jóna Björg Hlöðversdóttir

Gerður Sigtryggsdóttir

Eyþór Kári Ingólfsson

Starfsmenn

Ragnheiður Jóna Ingimarsdóttir

Fundargerð ritaði: Ragnheiður Jóna Ingimarsdóttir, sveitarstjóri

Formaður setti fund og óskaði eftir að bæta á dagskrá sem 2. dagskrárlið Heilsueflandi samfélag og 7. lið miðstöð sjúkraflugs á Íslandi - yfirlýsing. Samþykkt samhljóða.

 

Dagskrá:

 

1.

Fjármála- og stjórnsýslusvið - 2501035

 

Margrét Hólm Valsdóttir kom til fundar og fór yfir stöðu innleiðingar á nýjum kerfum sem áætlað var fyrir í fjárhagsáætlun 2025.

 

Byggðarráð þakkar Margréti Hólm greinargóða yfirferð og fagnar því að stór skref séu framundan í stafrænni vegferð.

 

Samþykkt

 

   

2.

Heilsueflandi samfélag - 2403024

 

Þingeyjarsveit er aðili að Heilsueflandi samfélagi.
Meginmarkmið þess er að styðja samfélög í að vinna með markvissum hætti að því að skapa umhverfi og aðstæður sem stuðla að heilbrigðum lifnaðarháttum, heilsu og vellíðan allra íbúa. Í slíku samfélagi er heilsa og líðan íbúa í fyrirrúmi í stefnumótun og aðgerðum á öllum sviðum. Með innleiðingu Heilsueflandi samfélags vinna sveitarfélög einnig að innleiðingu heimsmarkmiða Sameinuðu þjóðanna.

 

Byggðarráð leggur til við sveitarstjórn að auglýst verði eftir verkefnum til samstarfs við sveitarfélagið í samræmi við markmið heilsueflandi samfélags.

 

Samþykkt

 

   

3.

Anna Dagbjört Andrésdóttir - Maður er manns gaman - 2501027

 

Lagt fram bréf frá Önnu Dagbjörtu Andrésdóttur þar sem óskað er eftir styrk vegna afnota af Skjólbrekku í 5-8 skipti vegna verkefnisins "Maður er manns gaman".

 

Byggðarráð frestar afgreiðslu málsins.

 

Frestað

 

   

4.

Beiðni um tilnefningar í svæðisráð norðursvæðis í Vatnajökulsþjóðgarði 2025-2029 - 2501029

 

Með lögum um Náttúruverndarstofnun, nr. 111/2024 sem samþykkt voru á Alþingi 23. júní sl. og taka gildi 1. janúar nk. verður Vatnajökulsþjóðgarður hluti af Náttúruverndarstofnun.

Með nýjum lögum um Náttúruverndarstofnun taka m.a. gildi breytingar á lögum nr. 60/2007 um Vatnajökulsþjóðgarð hvað varðar skipan stjórnar þjóðgarðsins og skal umhverfis-, orku- og loftslagsráðherra nú skipa svæðisstjórn Vatnajökulsþjóðgarðs.
Vegna ofangreindra lagabreytinga verða svæðisráð endurskipuð til fjögurra ára eftir gildistöku laganna 1. janúar nk. Er þess hér með óskað að Þingeyjarsveit tilnefni einn aðalfulltrúa og einn varafulltrúa eða staðfesti setu núverandi fulltrúa í svæðisráði norðursvæðis í Vatnajökulsþjóðgarði. Er þess óskað að staðfestingar eða nýjar tilnefningar berist ráðuneytinu eins fljótt og við verður komið og ekki síðar en 10. janúar nk.

 

Byggðarráð leggur til að skipan verði óbreytt og staðfestir setu núverandi fulltrúa sem eru Gerður Sigtryggsdóttir og Árni Pétur Hilmarsson, aðalfulltrúar og Anna Guðný Baldursdóttir og Jóna Björg Hlöðversdóttir, varafulltrúar.

 

Samþykkt

 

   

5.

Beiðni um styrk - aðgengi í Flatey - 2501034

 

Lagt fram bréf frá Húseigendafélags Flateyinga þar sem óskað er eftir stuðningi við að bæta aðgengi í eyjuna í ljósi skemmda sem urðu í óveðri fyrr í vetur.

 

Byggðarráð þakkar erindið og leggur til við sveitarstjórn að Félagi Húseigenda í Flatey verði veittur styrkur að upphæð 500 þúsund kr. sem verði færður á lið 05-890/9180.

 

Samþykkt

 

   

6.

Verðmat á húseignum - 2412002

 

Á 53. fundi sveitarstjórnar var samþykkt tillaga byggðarráðs að hefja söluferli á eignum í eignasafni sveitarfélagsins.

 

Byggðarráð leggur til við sveitarstjórn að selja eignina Skútahraun 2b. Sala eignarinnar fer fram á grundvelli lokamálsliðar fyrsta liðar reglna 3.2. um sölu fasteignar, þ.e. gerð án auglýsingar. Það er gert í ljósi sérstakra aðstæðna en fasteignin er hluti af parhúsi sem er verulega skemmt vegna vatnstjóns. Ráðast þarf í viðgerðir á sameign hússins, m.a. þaki, sem áhrif munu hafa á báðar eignir hússins. Í ljósi ástands hússins, fyrirliggjandi viðgerðarkostnaðar og tíma sem viðgerð getur tekið leggur byggðarráð til við sveitarstjórn að samþykkja kauptilboð frá Antoni Frey Birgissyni eiganda hins eignarhluta parhússins.
Jafnframt leggur byggðarráð til við sveitarstjórn að hefja
söluferli á Birkihrauni 6.

 

Samþykkt

 

   

7.

Miðstöð sjúkraflugs á Íslandi - yfirlýsing - 2501043

 

Lögð fram yfirlýsing Miðstöðvar sjúkraflugs á Íslandi vegna lokunar flugbrauta á Reykjavíkurflugvelli.

 

Byggðarráð tekur undir sjónarmið sem fram koma í yfirlýsingunni og lýsir yfir áhyggjum af jöfnu aðgengi landsmanna að lífsnauðsynlegri heilbrigðisþjónustu.

 

Samþykkt

 

   

Fundi slitið kl. 15:30.

 

Fyrirvari:
Athugið að afgreiðslur nefnda þarfnast almennt staðfestingar sveitarstjórnar, nema í þeim tilfellum þar sem nefnd hefur verið veitt heimild til fullnaðarafgreiðslu mála í samþykktum sveitarfélagsins.