Fundargerð
Félags- og menningarmálanefnd
18.02.2014
39. fundur
Félags- og menningarmálanefnd, fundur nr. 39
Dags. 18.2.2014
Félags- og menningarmálanefnd
39. fundur
í Kjarna þriðjudaginn 18. febrúar 2014 kl. 17:00
Mætt voru: Arnór Benónýsson, Hildur Rós Ragnarsdóttir, Sigrún Jónsdóttir og Haraldur Bóasson, Rósa Ösp Ásgeirsdóttir sem ritaði fundargerð . Að auki sat Dagbjört Jónsdóttir sveitarstjóri fundi nefndarinnar.
Arnór setti fund kl. 17:00 og bauð alla aðila velkomna.
Nefndin samþykkir að auglýst verði eftir umsóknum vegna styrkja til lista- og menningarstarfs og íþrótta- og æskulýðsstarfs. Sveitarstjóra falið að auglýsa eftir styrk umsóknum og umsóknarfrestur verði til miðnættis 31. mars.
a) Bókamarkaður í tengslum við sveitarstjórnarkosningar.
Nefndin samþykkir að haldinn verði bókamarkaður í tengslum við sveitarstjórnarkosningar 31. maí og 1.júní í Ljósvetningabúð. Sveitarstjóra falið að útvega fólk til að sjá um framkvæmdina.
b ) Æskulýðs- og tómstundafulltrúi. Auglýst var í haust eftir umsóknum um starfið og er Dagbjört að vinna að málinu.
c) Forstöðumaður sundlaugar á Laugum:
Fimm umsóknir bárust en núverandi forstöðumaður lætur af störfum 1.apríl.
Fleira ekki gert, fundi slitið 18.15.
Rósa Ösp Ásgeirsdóttir, ritari.