Fundargerð
Félags- og menningarmálanefnd
06.04.2017
54. fundur
haldinn í Kjarna fimmtudaginn 06. apríl kl. 15:00
Heiða Guðmundsdóttir
Hildur Rós Ragnarsdóttir
Jón Þórólfsson
Ingvar Vagnsson
Ari Heiðmann Jósavinsson
Jónas Halldór Friðriksson umsjónarmaður fasteigna og framkvæmda, sat fundinn undir 2. lið.
Dagskrá
Fundargerð
1. Heiða Guðmundsdóttir setur fundinn og les fundargerð síðasta fundar og hún samþykkt.
2. Vinnuskólinn. Jónas Halldór Friðriksson segir frá hugmyndum sínum varðandi vinnuskólann í sumar. Hans hugmyndir er að hafa einhverjar forvarnir og /eða fræðslu fyrir unglingana samhliða vinnu og þá í samvinnu við Norðurþing. Einnig eru hugmyndir að bjóða öðrum unglingum í sveitarfélaginu að taka þátt i fræðslunni eða viðburðunum. Búið er að auglýsa eftir starfsmanni í samvinnu með Eflingu til að hafa umsjón með vinnuskólanum ásamt öðrum verkum.
3. Auglýsing umsókna styrkja. Nefndin samþykkti í tölvupósti 6.03. 2017 að auglýst verði eftir umsóknum vegna styrkja til lista- og menningarstarfs annars vegar og íþrótta- og æskulýðsstarfs hins vegar. Formanni var falið að auglýsa eftir umsóknum styrkja. Umsóknarfrestur verði til miðnættis 27. mars 2017.
4. Úthlutun styrkja til lista- og menningarstarfs:
Öðrum umsóknum hafnað.
5. Úthlutun styrkja til íþrótta- og æskulýðsstarfs:
6. önnur mál
Fleira ekki bókað, fundi slitið kl. 16:35