Fundargerð
Félags- og menningarmálanefnd
20.11.2019
63. fundur
haldinn í Kjarna miðvikudaginn 20. nóvember kl. 17:00
Sigríður Hlynur Helguson Snæbjörnsson
Eyþór Kári Ingólfsson
Jón Þórólfsson
Ólína Arnkelsdóttir
Katla Valdís Ólafsdóttir
Gísli Sigurðsson skrifstofustjóri sat fundinn undir
lið 1
Dagskrá
1. Fjárhagsáætlun 2020.
2. Gjaldskrá Þingeyjarsveitar 2020
3. Líkamsrækt eldri borgara.
4. Önnur mál.
Hlynur setti fund og fundarmenn velkomna.
Fundargerð:
Gjaldskrá fyrir heimaþjónustu: Félags- og menningarmálanefnd leggur til við sveitarstjórn að gjaldskráin sé óbreytt en gjaldskráin tekur mið af vísitölu neysluverðs og er uppfærð samkvæmt því í janúar.
Gjaldskrá fyrir sundlaugina á Laugum: Félags- og menningarmálanefnd leggur til við sveitarstjórn að gjaldskrá sé óbreytt að öðru leyti en að atvinnurekendur í Þingeyjarsveit geta samið við forstöðumann sundlaugar um afsláttarkjör fyrir starfsmenn sína allt að 1/3 hluta sem greitt er eftirá samkvæmt samkomulagi.
SUNDLAUGIN Á LAUGUM - GJALDSKRÁ 2020
Börn 6-17 ára 400
Öryrkjar og aldraðir 400
Fullorðnir, 18 ára og eldri 900
10 miðar:
Börn 3.000
Öryrkjar og aldraðir 3.000
Fullorðnir 4.000
Kort:
Fullorðnir 3 mán. 9.000
Fullorðnir 6 mán. 15.000
Fullorðnir 12 mán. 26.000
Leiga:
Leiga á sundfötum 500
Leiga á handklæði 500
Tilboð:
Sund, sundföt og handklæði 1.500
Gjaldskrá fyrir Félagsheimili Þingeyjarsveitar: Félags- og menningarmálanefnd leggur til við sveitarstjórn að gjaldskrá sé óbreytt.
Gjaldskrá Útleiga á borðbúnaði og áhöldum Félagsheimila í Þingeyjarsveit: Félags- og menningarmálanefnd leggur til við sveitarstjórn að gjaldskrá sé óbreytt.
Fleira ekki bókað og fundi slitið 19:30