Dagskrá:
- Málefni bókasafns Reykdæla.
- Úthlutun styrkja til íþrótta- og æskulýðsmála
- Úthlutun styrkja til menningarmála
- Málefni fjölmenningar.
- Önnur mál.
Fundargerð:
Hlynur bauð fundarmenn velkomna á 69. fund félags og menningarmálanefndar. Eyþór Kári Ingólfsson boðaði forföll á síðustu stundu.
- Málefni bókasafns Reykdæla. Sólborg sagði frá hugmyndum sínum varðandi bókasafnið, útlán á spilum og aðrar framtíðarþróanir. Sólborg lagði það undir nefndina að afskrifa bækur á bókasafni Reykdæla, eyða bókum sem hafa ekki verið teknar í útlán árum saman. Bókasafnið er nýflutt yfir í húsnæði Krílabæjar. Félags- og menningarmálanefnd leggur til við sveitarstjórn að sveitarstjóri ásamt Sólborgu bókaverði fái fagaðila til að meta bækurnar og finna lausn á málinu og tekur vel í hugmyndir Sólborgar um framtíðarþróun bókasafnsins.
- Úthlutun styrkja til íþrótta- og æskulýðsmála
Ungmennafélagið Bjarmi Fnjóskadal- Starfsemi Bjarma. Samþykkt 300.000 kr.
- Úthlutun styrkja til menningarmála
Ein umsókn var til menningarmála en var hafnað þar sem hún féll ekki að úthlutunarreglum nefndarinnar.
- Málefni fjölmenningar. Félags- og menningarmálanefnd tekur undir eftirfarandi bókun sveitastjórnar frá 28. apríl 2022: „Þar sem forsendur samningsins eru það mikið breyttar samþykkir sveitarstjórn samhljóða að slíta samningnum. Sveitarstjórn leggur til við sveitarstjórn nýs sameinaðs sveitarfélags að ráðinn verði menningarfulltrúi sem fari með menningarmál í sameinuðu sveitarfélagi þar með talið málefni fjölmenninga, móttöku nýrra íbúa og móttöku flóttafólks.“
- Önnur mál
Fundi slitið.