Fundargerð
Skipulagsnefnd 2022-2026
14.04.2021
136. fundur
Skipulagsnefnd 2022-2026
haldinn Í Seiglu miðvikudaginn 14. apríl kl. 10:00
Ásvaldur Ævar Þormóðsson
Sæþór Gunnsteinsson
Nanna Þórhallsdóttir
Jóna Björg Hlöðversdóttir
Sigríður Hlynur Helguson Snæbjörnsson
Atli Steinn Sveinbjörnsson
Helga Sveinbjörnsdóttir
1. |
Endurskoðun Aðalskipulags Þingeyjarsveitar 2010-2022 - 1903011 |
|
Skipulagsráðgjafinn Árni Geirsson og Hildur Kristjánsdóttir frá ALTA kom á fund nefndarinnar í gegnum fjarfund og kynntu þá vinnu sem hefur átt sér stað vegna endurskoðunar Aðalskipulags Þingeyjarsveitar 2010-2022 síðan skipulags- og matslýsing var kynnt á haustdögum 2020. |
||
Skipulags- og umhverfisnefnd þakkar fyrir kynninguna. |
||
Samþykkt |
||
2. |
Hlíðskógar - umsókn um framkvæmdaleyfi fyrir skógrækt - 2011017 |
|
Tekið fyrir að nýju erindi frá Snædísi Róbertsdóttur dags. 11. nóvember 2020 varðandi umsókn um framkvæmdaleyfi til skógræktar í landi Hlíðskóga í Bárðardal, L153494. Fyrirhugað skógræktarsvæði er í Bárðardal og er 76 hektarar að stærð. Skógræktarsvæðið er í megindráttum í Valley sem er eyja sem liggur í Skjálfandafljóti. Einnig eru tvö svæði ofan vegar, eitt sunnan við bæinn og annað norðan við. |
||
Í ljósi athugasemda sem bárust frá umsagnaraðilum vegna fyrirhugaðrar skógræktar samþykkir skipulags- og umhverfisnefnd að fela skipulagsfulltrúa að óska eftir viðbrögðum framkvæmdaraðila vegna athugasemda sem þar koma fram. |
||
Samþykkt |
||
3. |
Arnstapi - nafnabreytingar sumarbústaðalóðir - 2104001 |
|
Tekið fyrir erindi dags. 30.3.2021 frá Þorgeiri Halldórssyni þar sem sótt er um leyfi til að breyta nöfnum þeirra lóða í eigu umsækjanda sem bera nafnið "Arnstapi lóð" í "Arnstapabyggð". |
||
Skipulags- og umhverfisnefnd gerir ekki athugasemdir við nafnabreytingar lóðanna í samræmi við fyrirliggjandi gögn og leggur til við sveitarstjórn að þær verði samþykktar og jafnframt verði byggingarfulltrúa falið að annast málsmeðferð vegna hennar eins og lög og reglugerðir mæla fyrir um. |
||
Samþykkt |
||
4. |
Höfðabyggð B09 - umsókn um byggingarleyfi - 2103035 |
|
Tekið fyrir erindi dags. 19.3.2021 frá Guðmundi Hjaltasyni f.h. Óskars Inga Sigurðssonar og Helgu Aðalgeirsdóttur þar sem sótt er um byggingarleyfi fyrir frístundahúsi á lóðinni Höfðabyggð B09 í Lundsskógi. |
||
Skipulags- og umhverfisnefnd felur skipulagsfulltrúa að grenndarkynna byggingaráformin fyrir nágrönnum og öðrum hagsmunaaðilum eins og 2.mgr. 43.gr skipulagslaga nr. 123/2010 mælir fyrir um. |
||
Samþykkt |
||
5. |
Umsókn um byggingarleyfi á Víðum 1 - 2104013 |
|
Tekið fyrir erindi mótt. 11.apríl 2021 frá Þórdísi Lóu Þórhallsdóttur þar sem sótt er um byggingarleyfi fyrir íbúðarhúsi á Víðum 1. |
||
Skipulags- og umhverfisnefnd felur skipulagsfulltrúa að grenndarkynna byggingaráformin fyrir nágrönnum og öðrum hagsmunaaðilum eins og 2.mgr. 43.gr skipulagslaga nr. 123/2010 mælir fyrir um. |
||
Samþykkt |
||
6. |
Umsókn um byggingarleyfi viðbyggingar við íbúðarhúsið á Hjalla - 2104012 |
|
Tekið fyrir erindi sem Cornelia og Aðalsteinn Þorsteinsson sendu inn þann 13.4.2020 þar sem sótt er um byggingarleyfi fyrir viðbyggingu við íbúðarhúsið á Hjalla. |
||
Skipulags- og umhverfisnefnd leggst ekki gegn fyrirhuguðum byggingaráformum. Ekkert deiliskipulag liggur fyrir á svæðinu. Fyrirhuguð framkvæmd varðar ekki hagsmuni annarra en sveitarfélagsins og framkvæmdaraðila og samþykkir skipulags- og umhverfisnefnd að fallið verði frá grenndarkynningu á byggingaráformunum skv. 3. mgr. 44. gr. í skipulagslögum nr. 123/2010. Jafnframt felur skipulags- og umhverfisnefnd byggingarfulltrúa að gefa út byggingarleyfi þegar öll tilskilin gögn hafa borist. |
||
Samþykkt |
||
7. |
Umsókn um byggingarleyfi geymslu á Árbót lóð nr. 7. - 2104011 |
|
Tekið fyrir erindi dags. 16.03.2021 frá Vigfúsi Sigurðssyni þar sem sótt er um byggingarleyfi fyrir tæplega 30m2 geymslu á lóðinni Árbót lóð 7. |
||
Skipulags- og umhverfisnefnd felur skipulagsfulltrúa að grenndarkynna tillögu að byggingu 30m2 geymslu utan byggingarreits fyrir nágrönnum og öðrum hagsmunaaðilum eins og 2.mgr. 43.gr skipulagslaga nr. 123/2010 mælir fyrir um. |
||
Samþykkt |
||
8. |
Vellir - umsókn um byggingarleyfi - 2103010 |
|
Tekið fyrir að nýju erindi dags. 08.03.2021 þar sem sótt er um byggingarleyfi fyrir íbúðarhúsi á lóðinni Hvannavöllum, L231514. |
||
Þar sem ekki komu fram athugasemdir í grenndarkynningu samþykkir skipulags- og umhverfisnefnd byggingaráformin og felur byggingarfulltrúa að gefa út byggingarleyfi þegar öll tilskilin gögn hafa borist. |
||
Samþykkt |
||
9. |
Stekkjarbrot - umsókn um byggingarleyfi frístundahúss - 2101007 |
|
Tekið fyrir að nýju erindi dags. 14.12.2020 þar sem sótt er um byggingarleyfi fyrir frístundahúsi á lóðinni Stekkjarbroti í Bárðardal. Á fundi nefndarinnar þann 21.01.2021 fól nefndin skipulagsfulltrúa að grenndarkynna tillöguna að byggingu fyrir nágrönnum og öðrum hagsmunaaðilum eins og 2.mgr. 43.gr. skipulagslaga nr. 123/2010 mælir fyrir um. |
||
Þar sem ekki komu fram athugasemdir í grenndarkynningu samþykkir skipulags- og umhverfisnefnd byggingaráformin og felur byggingarfulltrúa að gefa út byggingarleyfi þegar öll tilskilin gögn hafa borist. |
||
Samþykkt |
||
10. |
Skýrsla skipulagsfulltrúa og byggingarfulltrúa - 1909022 |