Fundargerð
Skipulagsnefnd 2022-2026
10.02.2022
145. fundur
Skipulagsnefnd 2022-2026
haldinn í fjarfundi fimmtudaginn 10. febrúar kl. 10:00
Ásvaldur Ævar Þormóðsson, Sæþór Gunnsteinsson, Nanna Þórhallsdóttir, Jóna Björg Hlöðversdóttir og Sigríður Hlynur Helguson Snæbjörnsson
Atli Steinn Sveinbjörnsson og Helga Sveinbjörnsdóttir.
Dagskrá:
1. Einarsstaðir 1 og 3, stækkun lóðar - 2201001 |
1. Einarsstaðir 1 og 3, stækkun lóðar - 2201001 |
|
Tekið fyrir að nýju erindi mótt.5.janúar frá Eini Viðari Björnssyni þar sem sótt var um hnitsetningu og stækkun lóðar undir íbúðarhúsið að Einarsstöðum 1 og 3. |
|
Á milli funda var rætt við landeigendur, sóknarnefnd og Þjóðkirkjuna, og var það alltaf ætlun landeigenda að þinglýsa kvöð á áætlaða lóð til að tryggja aðgengi kirkjugesta að bílastæðum þegar þörf er á. |
|
Samþykkt |
|
2. Vegagerðin - Ný lega Norðausturvegar 85-02 um Skjálfandafljót í Kinn - 1808035 |
|
Tekið fyrir að nýju erindi varðandi áætlaða veglínu Norðausturvegar 85-02. Eftir samskipti á árunum 2019-2020 hefur sveitarfélaginu borist afstöðumynd af þeirri veglínu sem er í samræmi við bókanir skipulags- og umhverfisnefndar sem og sveitarstjórnar frá þeim tíma. |
|
Skipulags- og umhverfisnefnd leggur til við sveitarstjórn að samþykkja að setja umrædda veglínu inn í vinnslutillögu að nýju aðalskipulagi sem verði kynnt á vordögum. |
|
Samþykkt |
|
3. Hólsvirkjun - Beiðni um breytingu á aðalskipulagi - 2202001 |
|
Tekin fyrir beiðni frá Önnu Bragadóttur f.h. Arctic Hydro um heimild til breytingar á Aðalskipulagi Þingeyjarsveitar 2010 - 2022. Fyrir liggur tillaga að breytingu á aðalskipulagi frá Eflu verkfræðistofu dags. 1. febrúar 2022 sem felur í sér að heimiluð sé aflaukning Hólsvirkjunar úr 5,5 MW í 6,7 MW. Niðurstaða Skipulagsstofnunar um matskyldu framkvæmdarinnar dags. 27. janúar 2022 er sú að að fyrirhuguð framkvæmd sé ekki líkleg til að hafa í för með sér umtalsverð umhverfisáhrif, sbr. þau viðmið sem tilgreind eru í 2. viðauka laga um umhverfismat framkvæmda og áætlana. Því skal framkvæmdin ekki háð mati á umhverfisáhrifum. |
|
Skipulags- og umhverfisnefnd telur að um óverulega breytingu á aðalskipulagi sér að ræða skv. 2. mgr. 36. gr skipulagslaga sem segir að við mat á því hvort breyting á aðalskipulagi geti talist óveruleg skal taka mið af því hvort hún hafi verulegar breytingar á landnotkun í för með sér eða sé líkleg til að hafa mikil áhrif á einstaka aðila eða hafa áhrif á stór svæði. |
|
Samþykkt |
|
4. Endurskoðun Aðalskipulags Þingeyjarsveitar 2010-2022 - 1903011 |
|
Farið yfir þá vinnu sem unnin hefur verið tengt uppfærslu aðalskipulags. |
|
Lagt fram |
|
Skýrsla skipulagsfulltrúa og byggingarfulltrúa - 1909022 |
|
Skipulagsfulltrúi og byggingarfulltrúi gerðu grein fyrir stöðu mála og verkefna sem falla undir þeirra verksvið hjá sveitarfélaginu.
Fundi slitið kl. 12:00 |