Laus störf í Þingeyjarskóla

Viltu vinna í skemmtilegu umhverfi, með frábærum nemendum og með góðu samstarfsfólki?  Við viljum fá til liðs við okkur:

     Skólaliða í 80-100% starf frá og með 15. ágúst.

     Matráð – aðstoð í eldhúsi í 100% starf frá og með 15. ágúst.

     Leikskólakennara/leikskólastarfsmann í 60-80% starf við leikskóladeildina Krílabæ á Laugum frá og með 6. ágúst.

Við leitum að starfsfólki sem:

  • Treystir sér í faglega og metnaðarfulla vinnu
  • Er lausnamiðað
  • Er sveigjanlegt og með góða samskiptahæfni
  • Er sjálfstætt í vinnubrögðum og sýnir/býr yfir frumkvæði
  • Hefur metnað til að takast á við ný og spennandi verkefni
  • Vill taka þátt í samstarfi og teymisvinnu
  • Ber virðingu fyrir börnum og hefur áhuga á að starfa með þeim

Þingeyjarskóli er samrekinn leik-, grunn- og tónlistarskóli með um 110 nemendur. Þar af rúmlega 30 leikskólanemendur á tveimur starfsstöðvum. Áhersla er lögð á teymisvinnu og fjölbreytta kennsluhætti innan skólans sem og að skapa leik- og námsumhverfi sem auðgar bernsku barna og örvar þroska þeirra.

Lögð er áhersla á samvinnu og sameiginlega ábyrgð starfsmanna á verkefnum skólans. Gerðar eru kröfur um mikla hæfni í mannlegum samskiptum, stundvísi og hreint sakavottorð.

Áhugasamir einstaklingar, án tillits til kyns, eru hvattir til að sækja um. Möguleiki er á húsnæði.

Umsóknarfrestur er framlengdur til 30. júlí 2024.

Umsóknir skal senda á netfangið asta.flosadottir@thingeyjarsveit.is

Frekari upplýsingar veitir Ásta F. Flosadóttir sviðsstjóri fjölskyldusviðs Þingeyjarsveitar í síma 512 1800. Fyrirspurnir má einnig senda á asta.flosadottir@thingeyjarsveit.is