Starfsmaður íþróttamiðstöðvar í Reykjahlíð

Laust er til umsóknar starf starfsmanns í Íþróttamiðstöðinni í Reykjahlíð í Þingeyjarsveit. Um er að ræða 70-80% starf í vaktavinnu, æskilegt að viðkomandi geti hafið störf sem fyrst. Næsti yfirmaður er forstöðumaður íþróttamiðstöðvar.

Helstu verkefni og ábyrgð:

  • Umsjón með íþróttahúsi
  • Afgreiðsla og önnur þjónusta við gesti
  • Almenn þrif
  • Framfylgja öryggis- og umgengnisreglum
  • Eftirlit með húsnæði og búnaði, ásamt öðru sem til fellur í íþróttahúsi og á útisvæði íþróttamiðstöðvarinnar.

Hæfniskröfur:

  • Lágmarksaldur 18 ár
  • Reynsla í þrifum
  • Frumkvæði og sjálfstæði í starfi
  • Þjónustulund og lipurð í samskiptum
  • Stundvísi og samviskusemi
  • Hreint sakavottorð

Starfið hentar öllum kynjum og eru áhugasöm hvött til að sækja um.

Umsóknarfrestur er til 7. febrúar 2025.

Laun og starfskjör eru samkvæmt gildandi kjarasamningi Sambands íslenskra sveitarfélaga við Framsýn stéttarfélag. Umsóknum skal skilað á netfangið asta.flosadottir@thingeyjarsveit.is

Nánari upplýsingar veitir Ásta Price forstöðumaður í síma 464 4225 og í gegnum netfangið asta.price@thingeyjarsveit.is