Starfsmann vantar í íþróttamiðstöðina í Reykjahlíð

Laust er til umsóknar tímabundið starf við Íþróttamiðstöð Reykjahlíðar. Um er að ræða vaktavinnu og er starfshlutfall 35-40%. Næsti yfirmaður er forstöðumaður íþróttamiðstöðvar.

Helstu verkefni og ábyrgð:

  • Umsjón með íþróttahúsi
  • Afgreiðsla og önnur þjónusta við gesti
  • Almenn þrif
  • Framfylgja öryggis- og umgengnisreglum
  • Eftirlit með húsnæði og búnaði, ásamt öðru sem til fellur í íþróttahúsi og á útisvæði íþróttamiðstöðvarinnar.

Hæfniskröfur:

  • Lágmarksaldur 18 ár
  • Reynsla í þrifum
  • Frumkvæði og sjálfstæði í starfi
  • Þjónustulund og lipurð í samskiptum
  • Stundvísi og samviskusemi
  • Hreint sakavottorð

Starfið hentar öllum kynjum og eru áhugasöm hvött til að sækja um.

Umsóknarfrestur er til 26. ágúst 2024.

Laun og starfskjör eru samkvæmt gildandi kjarasamningi Sambands íslenskra sveitarfélaga við Framsýn stéttarfélag. Umsóknum skal skilað á netfangið asta.flosadottir@thingeyjarsveit.is

Nánari upplýsingar um starfið veitir Ásta Price forstöðumaður í síma 4644225 eða á asta.price@thingeyjarsveit.is