Styrkir til íþrótta- og æskulýðsstarfs

Íþrótta- tómstunda- og menningarnefnd Þingeyjarsveitar auglýsir eftir umsóknum um styrki vegna íþrótta- og æskulýðsstarfs á árinu 2023. Bæði einstaklingar og félagasamtök geta sótt um styrki og metur nefndin hvaða verkefni eru styrkhæf og hver ekki. Styrkþegar þurfa að hafa lögheimili í Þingeyjarsveit. Félagasamtök þurfa að skila inn ársreikningi liðins árs með umsókn. Þá ber öllum að skila inn til nefndarinnar greinargerð um framgang verkefnis og ráðstöfun styrkfjár innan árs frá styrkveitingu. Umsóknum skal skilað á heimasíðu Þingeyjarsveitar, smella hér. Umsóknir og fylgiskjöl skulu berast í síðasta lagi 30. september n.k.

Ath. minnum styrkþega 2022 á að skila inn greinargerð um framgang verkefnis og ráðstöfun styrkfjár á netfangið itmnefnd@thingeyjarsveit.is

Íþrótta- tómstunda- og menningarnefnd Þingeyjarsveitar